19.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (495)
4. mál, breyting á alþingistíma
Pétur Jónsson:
Það hefir verið talað um að bændur ættu að láta í ljósi vilja sinn um þetta mál, og það hefi eg fyrir mitt leyti gert á síðasta þingi hér í deildinni. Og eg get enn lýst yfir því í stuttu máli, að eg álít þann þingtíma, sem nú er lögákveðinn, einhvern hinn óheppilegasta. Eftir minni reynslu eru það tveir tímar ársins, sem bændur mega sízt missa, sem sé haust og vor. Á vorin, þegar voryrkjurnar byrja, er mest um vert að sjá um túnávinslu, vatnsveitur og aðrar voryrkjur, og það er mér dýrasti tíminn. Í öðru lagi er mest hætta snemma vors á að heyskortur geti orðið; við erum nú ekki komnir svo langt í búnaðinum ennþá, að slíkt geti ekki komið fyrir, og þá hygg eg að heppilegast sé, að hver sé heima að sjá um sitt. Þar næst er haustið, þegar þarf að koma búsafurðunum í verð og búa sig undir veturinn. Aftur eru tveir aðrir tímar, sem eg hygg að flestum bændum verði heppilegastir, sem sé sumarið, sem líka hefir lengst af verið þingtími vor, og svo tíminn frá því í nóvember og þangað til í febrúar.
Ef þingtíminn er ekki lengri en tveir mánuðir, þá er sumarið mjög hentugt, því að þótt það sé dýr tími, þá er hann ekki eins hættulegur að missa hann frá búi, og það á að borga þm. svo, að þeir séu skaðlausir. Það er að vísu ekki gert sem stendur, en á því má og á að ráða bót. En ef þingið þarf að standa lengur en þetta, þá er komið fram á haust, og þá er vetrartíminn, sá er eg nefndi, hentugri fyrir bændur. Svipað er að segja um sjómenn og bændur. Þeir mættu helzt missa tímann frá veturnóttum og fram yfir nýjár. Hitt get eg síður dæmt um, hvort sjómenn eru meira hindraðir um miðsumartímann; en vitanlegt er það, að ef skipstjóri gjörist þingmaður, þá getur hann ekki haldið úti skipi sínu meðan þing er. Eg verð líka að leggja áherzlu á það, að vetrarþingin eru dýrari, og þótt ef til vill ætti að taka mest tillit til bændastéttarinnar í þessu máli, þá má þó ekki útiloka aðrar stéttir frá þingmensku. Því hafa kjósendur sjálfir skorið úr með því, að kjósa menn af þeim stéttum þing eftir þing, eins mikið og kunnugt er. Eg verð því að álíta sumartímann beztan, svo framarlega sem hann er takmarkaður við tveggja mánaða þing.