19.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (496)
4. mál, breyting á alþingistíma
Jón Jónsson (2. þm. Rvk.):
Eg stend upp að eins vegna einnar ástæðu sem hreyft hefi verið gegn frv. Þess hefir verið getið, viðvíkjandi háskólanum, að herbergin hér niðri í húsinu hafa áður verið notuð til annars en þinghaldsins, og megi þá eins halda því áfram, án þess að það komi í bága hvað við annað. En hér er ekki eingöngu á þetta að líta, heldur það, að ef halda ætti þing hér um þann tíma, þegar kensla fer fram í háskólanum, þá mundi sú kensla truflast að mun, vegna hávaða og umgangs, sem stafar frá þinginu. Hér í húsinu er ákaflega hljóðbært, og eg tók eftir því, þegar eg var við kenslu í vetur beint undir þeirri stofu, sem nú er lestrarsalur alþingis, að þá heyrðist ætíð töluvert til þeirra, sem þar voru að vinna að manntalsskýrslunum, og gættu þeir þó allrar varúðar, að hafa ekki hátt um sig. Og eins og kunnugt er, standa kenslustundir háskólans yfir öðru hverju allan daginn, frá því kl. 8 og 9 á morgnana og fram á kvöld. Verði því ekki þingtímanum breytt, þá er það óhjákvæmilegt, að útvega háskólanum annað húsrúm á næstu árum.