12.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (545)

10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Framsögumaður (JónMagnússon):

Út af fyrirspurn hv. þm. Dal. (B. J.), skal eg geta þess, að nefndin mun ekki geta fallist á br.till. hans. Í flokk eru teknir allir þeir símar, sem nokkur von er um að geti borgað sig — og til annara síma þykir okkur ekki fært að taka lán. Hinir verða að bíða þangað til afgangur verður af tekjunum af 1. og 2. flokks símunum.