30.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

9. mál, landssjóður kaupi einkasímann til Vestmannaeyja

Björn Kristjánsson:

Í sambandi við það sem eg sagði við 1. umr. þessa máls, skal eg leyfa mér að leita upplýsinga hjá hæstv. ráðherra um, hvort hagur landssjóðs sé svo góður, að hann geti lagt á sig þau útgjöld, sem af þessum kaupum stafa. Mér sýnist ekki rétt að aukaþing leggi þessa auknu byrði á landssjóðinn.