30.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

9. mál, landssjóður kaupi einkasímann til Vestmannaeyja

Ráðherrann (Kr. J.):

Það er langt frá að hagur landssjóðs sé góður. En hér er ekki um útgjöld að ræða, heldur arðvænlegt fyrirtæki, sem gefur af sér um 20% í arð. Það hljóta allir að sjá, að kaup á þessum síma eru ekki til að auka gjaldabyrði landssjóðs, heldur þvert á móti.