21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

11. mál, samningur um einkaréttarsölu á steinolíu

Bjarni Jónsson:

Eg vil geta þess að eg var svo heppinn að alt kjördæmi mitt er á sömu skoðun og eg um það, að aldrei skuli einokun á neinni vöru hér seld einstökum mönnum á leigu. Eg er á móti frumv., en með dagskrá þeirri sem fram hefir komið í málinu. Þó að frumvarpið sé felt, þá er als ekki loku skotið fyrir það að stjórnin geti tekið í taumana á heppilegan veg.