27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

16. mál, verslun og veitingar áfengra drykkja á Íslandi

Framsögumaður (Jón Magnússon):

Mér þykir ekki ástæða til að fara mörgum orðum um frv. nú. Nefndin stingur ekki upp á neinum verulegum breytingum á frv.; að eins leggur hún til að sektir séu lækkaðar nokkuð, og er það einkum vegna þess að brot gegn 2. gr. geta verið mjög smávægileg. Þótti nefndinni því lágmark sektanna of hátt.