17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (816)

37. mál, vörutollur

Framsögum. (Björn Kristjánsson):

Eg ætla að eins að gera ofurlitla athugasemd, áður en gengið verður til atkvæða. Eg tek aftur breytingartill. mína á þgskj. 215, við þessa umræðu, en mun koma með breytingattillögu síðar í samkomulagi við aðra, í sömu átt, og svo líka 1., 4. og 5. brt. á þgskj. 174. Um leið vildi eg mælast til þess, að þeir hv. þingmenn, sem fylgjandi eru frumvarpinu, greiði því atkv. sitt til 3. umr., en láti mig vita sem fyrst, ef þeir hafa einhverjar athugasemdir að gera.