19.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (834)
37. mál, vörutollur
Jón Jónsson Rvk.:
Herra forseti! Eg hefi heitið því, að lengja ekki mikið umræðurnar á þessu þingi, enda þykist eg hafa staðið við það. Það er álit mitt að miklar umræður á þingfundum séu þýðingarlitlar, því að eg þykist vita að menn eru oftast búnir að mynda sér skoðun um málin áður en fundir byrja. Eg vildi þó taka undir með hv. samþingismanni mínum að eg álít að breytingartill. á þgskj. 310 séu málinu til mikilla bóta. Eg var í hjarta mínu mjög fylgjandi verðtolli og álít að í honum felist það réttasta tollaprincip sem eg get hugsað mér, og eg get ekki verið því samdóma að sá tollur sé eins óframkvæmanlegur eins og sumir hv. þm. héldu svo fast fram; nú hefir hv. Ed. stútað honum, og er þá þess að gæta hvort vér neyðumst til að samþykkja þetta frv. sem nú liggur fyrir, til þess að bæta úr fjárþörf landssjóðs, sem eg álít að sé nú, þrátt fyrir tilraunir til að sýna fram á hið gagnstæða.
Háttv. Ed. þykist víst hafa bætt úr því, að hún feldi verðtollinn, með því að samþykkja toll á kolum. Eg get ekki undir neinum kringumstæðum verið með þeim tolli. Eg vildi helzt samþykkja þá eina tolla, sem koma jafnt niður á menn, hvort heldur þeir búa uppi í afdölum eða niður við sjó. En eg get ekki verið með svona einhliða sköttum, sem ekki aðeins koma nærri eingöngu niður á einstakar stéttir, heldur einnig á einstöku atvinnuvegi og hefta með því framgang eins atvinnuvegarins, sem er lang arðvænlegastur til frambúðar, og sem er nýlega stofnaður og er að byrja.
Eins og eg tók fram áðan þá er eg yfirleitt samþykkur og felli mig vel við brt. á þgskj. 310 og mun eg greiða þeim atkvæði; svo framarlega sem þær verða samþyktar, þá mun eg máske greiða frumv. atkvæði, en falli breytingartillögur þessar, þá get eg ekki að svo komnu sagt um hvað eg muni gera.