06.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í B-deild Alþingistíðinda. (874)

115. mál, styrktarsjóður barnakennara

Jón Magnússon:

Að eins stutt athugasemd út af orðum hv. framsögumanns. (L. H. B.). Eg gat þess í nefndinni, að eg vildi vinna það til samkomulags, að vera með 1. og 2. gr., ef feld yrði 3. gr. En eg gat þess ennfremur, að ella væri eg á móti frv. í heild sinni.