26.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í B-deild Alþingistíðinda. (884)
45. mál, tollgeymsla
Flutningsm. (Guðlaugur Guðmundsson):
Eg vona, að eg þurfi ekki að fara mörgum orðum um jafnlítið frv. Frv. er framkomið samkvæmt beiðni nokkurra kjósenda í kjördæmi mínu, er nú hefir lögð verið fram á lestrarsalinn, og hefi eg heyrt von samskonar beiðna úr Reykjavík og Ísafirði. Upphæð tollsins af vínföngum þeim, sem nú eru í tollgæzlu, nemur á Akureyri um 40 þús. kr., á Ísafirði um 48 þús kr. og í Reykjavík um 300 þús. kr. Með frv. er að eins farið fram á nokkura tilslökun á tollgeymslufrestinum. Mig minnir, að það hafi komið fram í umræðum á þingi 1909, að sanngjarnt væri að lengja tollgeymslufrestinn, þar sem kaupmenn yrðu fyrir árslok 1911 að birgja sig til þriggja ára. Ekki varð þó úr, að ákvæði yrði gert um þetta, en hins vegar munu þó umræðurnar um þetta hafa gefið tilefni til þess að kaupmenn bjuggust við tilslökun í þessu efni. Ef þingið vill ekki veita þessa ívilnun verður erfitt fyrir marga að greiða þennan toll nú í árslok, og því verða þeir að gera ráðstafanir til að selja sem mest strax eftir árslokin og ykist þá drykkjuskapurinn í landinu þann tímann að verulegum mun, en sízt ættu vinir bannlaganna að verða þessa valdandi, með því að snúast móti frumvarpinu.
Eg vil geta þess, að eg mun koma með lítilsháttar breytingu á frv gr. til 2. umr.