09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (941)
51. mál, íslenskt peningalotterí
Framsögum. minni hlutans (Bjarni Jónsson):
Eg er ekki við því búinn að flytja neitt fagurfræðilegs efnis. Eg hefi ekki setið við að yrkja eins og hv. 2. þm. S. Múl. (J. Ó.), ef vísan er þá eftir hann. Dreg eg efa á það af því að hún er hóti liðlegri en hann er vanur að hnoða nú á seinni árum. Mig furðar ekki svo mjög, þótt hann legði ekki út í að svara mér; til þess er hann víst of innantómur. Það hefir ekki oft heyrst annað en tómahljóð úr þeirri tunnu.
Annars skal eg benda á, að það getur verið sanngjarn mælikvarði á röksemdir hans, að hann segir að það séu 11 ár síðan 1905. (Hlátur).