31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (950)
52. mál, Grundarkirkja
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Eg gat þess við 1. umræðu, að nokkur orð vöntuðu inn í frv. því til skýringar, þessa litlu viðaukatill. höfum við þm. Eyf. leyft okkur að flytja á þgskj. 107. Því auðvitað er það meining frumv. að prestsmatan af Grundartorfu falli til kirkjunnar, á meðau svo er að auknar sóknartekjur hennar nema ekki mötu-upphæðinni. Eg hygg því, að þeir, sem annars eru hlyntir frv, muni fallast á þessa sjálfsögðu viðbót, sem að eins er til skýringar.
Um 2. gr. frv er það að segja, að hún er ekki annað en bein afleiðing af 1. gr., sem sé sú, að prestarnir til Grundarþinga og Akureyrar, fái þann tekjumissi sem af þessu leiðir, endurgreiddan úr prestlaunasjóði.
Annars er þetta mál svo einfalt og óbrotið, að eg sé ekki þörf á að fara fleiri orðum um það að sinni.