05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (988)
62. mál, skipting læknishéraðs
Pétur Jónsson:
Mér datt í hug út af því sem nú hefir verið skýrt frá af 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.), að landlæknir hefir ekki viljað láta slá Norðfjarðarhéraði upp, meðan ekki var búið að fá lækni í gott hérað þar í nánd þar sem líka er sjúkraskýli og fastur læknisbústaður, þá sé þetta ljósasti votturinn um að hér er verið að fara í gönur með því að biðja um þessi nýju héruð, meðan landlæknir vitanlega er að stritast við að fá hin eldri skipuð, og gengur svo bágt þar sem bæði er læknissetur og sjúkraskýli.