05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

62. mál, skipting læknishéraðs

Lárus H. Bjarnason:

An þess, að eg vilji blanda mér í þetta mál, þá vil eg spyrja háttv. þm. Borgf. (Kr. J.) hvers vegna ekki er búið að slá Norðfjarðarhéraði upp nú, þar sem nú er þó fenginn læknir í Fljótsdalshérað og hefir verið þar síðan á útmánuðum. Þrír mánuðir hefðu þó átt að vera nógur timi til þessa.