05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

62. mál, skipting læknishéraðs

Kristján Jónsson:

Læknir var ekki fenginn í Fljótsdalshérað fyr en eg var farinn til Hafnar í vor, og þess vegna mun þetta ekki hafa verið gert. Annars skal eg bæta því við, að eg hygg að Norðfjarðarhéraði hafi hingað til verið full vel þjónað af nágrannalæknunum á Seyðisfirði og Eskifirði. Að minsta kosti hafa engar kvartanir borist hingað út. af þjónustunni.