20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1539 í C-deild Alþingistíðinda. (1073)
75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund
Framsögum, (Björn Kristjánsson):
Eg vil að eins benda á það út af því, sem háttv. þm. Sfjk. (V. G.) sagði, að þetta myndi líta alt öðru vísi út, ef því yrði hagað eins og hann stingur upp á. Þá yrðu þessir peningar að veltufé bankans og þá er honum ekki gert að skyldu að græða svo mikið, að hann geti borgað 41/2, heldur að eins að græða eins mikið og hann getur. Þetta vinst alt með því sem háttv. þm. Sfjk. (V. G.) tók fram.