21.08.1913
Neðri deild: 40. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í C-deild Alþingistíðinda. (1110)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Jónsson:

Eg ætla að eins að gera örstutta athugasemd. Eg get í allflestum atriðum fallist á skoðun meiri hluta nefndarinnar. Það er aðallega eitt atriði, sem eg er í vafa um; það er skipun efri deildar og kosningin til hennar. Mun eg greiða atkvæði með öllum tillögum meiri hlutans til 3. umræðu, en get ekki sagt, hvernig eg muni þá greiða atkvæði.