22.08.1913
Neðri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í C-deild Alþingistíðinda. (1129)

92. mál, sauðfjárbaðanir

Einar Jónsson:

Eg er samþykkur því, að málinu sé vísað til landbúnaðarnefndarinnar. En eg vildi benda nefndinni á, að í 6. gr. frumv. er atriði, sem er alveg óframkvæmanlegt. Eg skal ekki við þessa umræðu málsins tala um einstök atriði í frumv. Eg vildi einungis benda háttv. nefnd á, að hún ætti að taka þetta til íhugunar.