29.08.1913
Neðri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1855 í C-deild Alþingistíðinda. (1206)
72. mál, landskiptalög
Framsögum. (Sigurður Sigurðsson):
Eg geri ráð fyrir að háttv. deildarmenn séu að sjálfsögðu búnir að kynna sér breytingartill. frá landbúnaðarnefndinni við þetta frv. á þgskj. 584. Það ætti því að vera óþarft að lýsa þeim frekar en þær gera sjálfar, eða skýra þær. Hins vegar skal eg geta þess, að flestar breytingarnar eru að eins orðabreytingar. Það er að eins breyt.till. við 8. gr. sem gæti kallast efnisbreyting, en skiftir þó ekki miklu máli. Hún fer að eins fram á að gera greinina, sem um er að ræða, aðgengilegri, eins og menn geta séð með því að bera þær saman. Skal eg að eins geta þess. að í frumvarpsgreininni er gert ráð fyrir, að ef einhver hefir ræktað hluta úr óskiftu landi, skuli landinu skift, eina því ræktaða sem inu óræktaða, milli allra þeirra sem þar eiga hlut að máli. Þetta þótti nefndinni nokkuð hart aðgöngu og vildi milda það með því að ákveða, að sá sem ræktað hefði landið, ætti forgangsrétt að því, og rétt á að kaupa það eftir mati.
Allar aðrar breyt.till. eru orðabreytingar, svo um þær þarf ekki að ræða. Í þetta sinn vill svo til að háttv. þm.
Dal. (B. J.) hefir ekki einu sinni gert áreining. Mun það spónnýtt í þingsögu hans að þessu sinni og ætti að vera trygging fyrir því að óhætt væri að greiða atkvæði með breyt.till.