29.08.1913
Neðri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1858 í C-deild Alþingistíðinda. (1213)

102. mál, einkaréttur til að vinna salt úr sjó

Kristinn Daníelsson:

Eg vildi að eins spyrjast fyrir um, hvort nefndin hefði í ógáti breytt 3. málagr. 5. greinar. Mér skildist svo á háttv. framaögum., að nefndin hefði ekki breytt öðru en 5% hækkuninni að 10 árum liðnum. Mér finst líka nægilegt að leyfishafi greiði þetta eina gjald.

Það var að eina þetta sem eg vildi spyrja að, hvort gert hefði verið í ógáti.