02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2031 í C-deild Alþingistíðinda. (1317)
26. mál, sparisjóðir
Lárus H. Bjarnason:
Eg er sammála stjórninni um það, að aðal-, ef ekki einka-tilgangur sparisjóða sé sá, að varðveita fé manna, sem inni eiga í sparisjóðunum; þar af leiðir, að það verður að búa svo um, að þessum tilgangi verði fullnægt. Og það hygg eg verði betur gert með einum eftirlitsmanni en mörgum. Í fyrsta lagi er hægra að fá einn færan mann til starfsins en marga. Í öðru lagi mundi hann verða óhlutdrægari en nágrannaeftirlitsmenn kynnu að verða, og í þriðja lagi mundi með því móti fást betra heildaryfirlit yfir starfsemi sjóðanna. Af þessum ástæðum er mér svo ant um að þetta ákvæði haldist í lögunum, að eg býst jafnvel við að greiða atkvæði á móti frumv. ef það skyldi verða felt úr því.