03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2079 í C-deild Alþingistíðinda. (1357)

43. mál, samþykktir um hringnótaveiði

Pétur Jónsson:

Eg skal ekki svara þessu mörgum orðum. Einungis vil eg segja það, að það er eins mikil ástæða til þess að banna þessar herpinótaveiðar innan við Hrísey, eins og að banna botnvörpuveiðar innan landhelgi. Því að það er enn ekki fengin nein sönnun fyrir því, að botnvörpungar geri meiri skaða í landhelgi en herpinót á þessu svæði.