09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (138)
21. mál, íslenskur sérfáni
Jóhannes Jóhannesson:
Eg ætla að eins að staðfesta skýrslu háttv. þm. Ak. um það, að hann var ekki á fundi Sambandsflokkanna í morgun, er þetta mál var þar til meðferðar. Á flokksfundinum var það talið sjálfsagt, að málið yrði sett í nefnd og komu menn sér saman um, hvaða mönnum flokkurinn skyldi koma að í nefndina. Afhenti eg forseta þegar í byrjun fundarins lista með nöfnum þeirra manna.