09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (148)
39. mál, skipun læknishéraða
Flutningsm. (Kristinn Daníelsson):
Háttv. þm. Snæf. (H. St.) mintist á, að það Væri vilji þjóðarinnar að embættismönnum yrði fækkað, og er það að vísu rétt, en eg Verð þó að segja, að hvað læknaembættin snertir, þá eru þau undantekin frá þeim þjóðarvilja. Þjóðin er að eins á móti óþörfum launahækkunum og stofnun óþarfa sýslana. En í sjálfu sér er það vottur um framför, ef starfsmönnum á nýjum sviðum fjölgar í landinu.
Þar sem talað var um, að læknar gætu ekki lifað í þessum héruðum, sem verið væri að stofna, þá er það sök þeirra manna, sem síðar vilja taka embættin að sér.
Eg átti sízt von á að háttv. þm. Vestm, (J. M.), svo góður maður sem hann er, vildi hafa sig til að mæla á móti nefnd. Annars hnigu orð hans helzt að því, hve örðugt væri að fá menn í embætti. Eg álít nú þvert á móti, að viðkoman á læknum hér frá háskólanum sé og verði svo mikil, að þeim örðugleikanum verði úr vegi rutt.
Eg vænti svo góða af inni háttv. deild, að hún sýni þessu máli sömu velvild og slíkum málum hefir oft verið sýnd hér áður, og fyrst og fremst að hún kjósi nefnd í málið til að athuga það nánara.