04.07.1913
Efri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)

25. mál, sjódómar og réttarfar í sjómálum

Steingrímur Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að þetta frumvarp fái hinni sömu meðferð, og hin önnur frumvörp, er við höfum haft í dag til meðferðar hjer í deildinni. Það þætti máske eðlilegast, að máli þessu væri vísað til siglinganefndarinnar, en jeg tel heppilegra, að það sje sett sjerstök nefnd, meðal annars vegna þess, að hjer kemur á morgun fyrir frumvarp, er yrði vísað til þeirrar nefndar. Jeg vil því leggja til, að máli þessu verði vísað til þriggja manna nefndar, að lokinni þessari umræðu.