09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (151)

39. mál, skipun læknishéraða

Pétur Jónsson:

Eg skal bæta því við það sem eg sagði áðan, og gleymdi þá, að eg hefi átt tal við landlækni um þetta mál, og sagði hann, að með sömu Viðkomu lækna og hingað til og með litlum afföllum, þá yrði ekki hægt að skipa læknum öll læknihéruð fyrir 1920, og gerði ekki ráð fyrir því þó, sem læknaefni kynnu að snúast frá læknisstöðu hér.