12.07.1913
Efri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (1535)

34. mál, lán til byggingar íbúðarhúsa á prestssetrum landsins

Eiríkur Briem:

Jeg vildi leyfa mjer að gera þá athugasemd um 6. breytingartillögu nefndarinnar, að jeg óska, að hún verði borin upp til atkvæða í tvennu lagi, þannig, að sjerstaklega verði greitt atkvæði um það, sem nefndin vill fella burtu, og það, sem hún vill setja í staðinn.