19.07.1913
Efri deild: 11. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

28. mál, ábyrgðarfélög

Steingrímur Jónsson, framsögum.:

Það er rjett, að jeg hefði getað komið með brtill. mína til þessarar umræðu, og því bað jeg háttv. forseta að bera frestunina undir atkvæði. En eins og jeg gat um áðan, bjóst jeg við, að brtill. í sömu átt og jeg vildi fara, mundi koma frá öðrum, og því fórst fyrir, að jeg kæmi með hana, en vil þó gjarnan, að hún geti komist að, og til þess er sá eini vegur, að fresta málinu til mánudags.