22.07.1913
Efri deild: 14. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

64. mál, friðun æðarfugla

Jón Jónatansson:

Jeg ætla mjer ekki: að lengja umræðurnar, en vil aðeins geta þess, að það er margt bæði í frv. og brtill., sem jeg get alls ekki felt mig við. Hins vegar álít jeg, að því mætti kippa í lag, ef timi væri til, og leyfi jeg mjer því að leggja til að málið verði tekið út af dagskrá að þessu sinni.