29.07.1913
Efri deild: 18. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)
30. mál, leynilegar kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum
Sigurður Eggerz, framsögumaður:
Jeg skal nú ekki bæta miklu við umræðurnar, en vil aðeins benda á það, að með þessu margumrædda ákvæði stj.frv. geta utanflokksmenn „spekúlerað“ í því, að koma ónýtum mönnum í fylkingarbrodd mótflokks síns. Jeg er alveg hissa á því, hvað menn leggja litla áherzlu á það, að hver flokkur eigi að ráða því einn, hverjir eru málsvarar hans. Háttv. 2. þm. N.-Múl. sagði, að mestu kappsmennirnir væru oft ekki bezt fallnir til þess, að sitja í bæjarstjórn, en það er nú einmitt mín skoðun, að venjulega sjeu þeir bezt til þess fallnir. Vinsælu mennirnir, „hófsmennirnir“, eru oft miðlungsmenn að hæfileikum, og sú hylli, sem þeir njóta hjá almenningi, geta oft verið á litlum rökum bygð. Það væri annars gaman að vita, hvort menn hjer á alþingi vildu taka upp þá reglu, sem gert er ráð fyrir í stj.frv. Ætli að mönnum þætti ekki súrt í broti, ef jeg t. d., sem er utan flokka, vildi fá að hafa hönd í bagga með flokkunum, hverja menn þeir gerðu að foringjum sínum. Jeg býst við, að menn tækju slíku allfjarri, en jeg skal játa, að það væri þægilegt fyrir utanflokksmennina, að fá þannig tækifæri til að stuðla að því, að einhver rolan fengi forustuna yfir mótstöðumönnunum.