04.08.1913
Efri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (1808)

76. mál, landssjóðsábyrgð á sparifé og innlánsfé Landsbankans

Eiríkur Briem:

Þótt þetta frv. sje ekki langt, þá er það eigi að síður þýðingarmikið, og mun því vera rjettast, að nefnd sje skipuð í málinu, og það því nemur, sem búast má við, að annað mál komi frá h. N. d., sem þannig er háttað, að bezt á við, að sama nefndin taki það einnig til meðferðar. Leyfi jeg mjer því ð stinga upp á, að 5 manna nefnd sje skipuð í málinu, að lokinni umræðu.