04.08.1913
Efri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
32. mál, réttargangsmátinn við undirréttina á Íslandi, viðauki
Steingr. Jónsson, framsögnm. meiri hlutans:
Jeg þykist bera hagsmuni almennings fyrir brjósti alveg eins mikið og háttv. þm. V-Skaftf. og hv. þm. Skagf. En viðvikjandi þeirri athugasemd hv. þm. V.-Skaftf., að undarlegt sje, að undanskilja í frumv. uppboðs- skifta- og fógetagerðir, þá er það að visu satt, að við þá rjetti geta komið fyrir allvandasöm spursmál, en í 99 tilfellum af 100 eru málin svo blátt áfram, að engin ástæða er til að lögfræðingur mæti, eða jafnvel að nokkur mæti. Í skiftarjetti geta komið fyrir ótal spursmál, sem öll geta orðið ágreiningsatriði. En skiftaráðanda tekst venjulega að jafna þau, þar til ekki eru eftir nema 1-2 eða ekkert. Svipað er að segja um fógetarjettinn.