08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (1847)
101. mál, sala á kirkjujörðinni Undirfelli
Þórarinn Jónsson, flutningsmaður:
Þetta frumvarp er framkomið vegna þess, að ábúandinn hefur orðið að snúa sjer til alþingis til þess að fá jörðina keypta. Hann hefur áður leitað kaups á jörðinni hjá sýslnnefnd Austur-Húnavatnssýslu, og fjekk það svar, að sýslunefndin áliti, að jörðin heyrði ekki undir 2. gr. laga um sölu kirkjujarða. Var það samþykt í sýslunefndinni með 3 atkv. gegn 2, en 2 greiddu ekki atkv. og töldust með meiri hluta. Voru þá skipaðir matsmenn og matið sent stjórnarráðinu, en með því að atkvæðagreiðsla sýslunefndarinnar þótti áljós, eða einhverjar aðrar ástæður hafa verið til, var henni sent málið aftur, og fjell það þá með 4 atkv. gegn 1. Aðalástæðan til þess var sú, að jörðin var talin hentugt barnaskólasetur. Þetta atriði var ítarlega rætt í sýslunefndinni. En það sýnist nú vera breytt skoðun hjá hreppsbúum í þessu atriði, þar sem komið hefur verið upp kenslustofu til barnafræðslu á öðrum stað í hreppnum, og því ekki líklegt, að hreppsmenn hugsi til þess, að setja upp heimavistarskóla fyrir börn og taka undir hann stóra jörð, en til heimangönguskóla er Undirfell ekki heppilega sett fyrir alla sveitina, Jeg hygg, að rækileg rannsókn á öllum skjölum máli þessu viðkomandi muni leiða í ljós, hvernig í þessu liggur, og vona jeg því, að hv. deild skipi 3 manna nefnd til þess að íhuga það, og geri jeg það að minni uppástungu, að lokinni þessari umr.