08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í B-deild Alþingistíðinda. (1853)

47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Steingr. Jónsson:

Jeg stend einungis upp til þess að undirstrika það, að jeg álít, að þessi lög, eins og ellistyrktarsjóðslögin, sjeu aðeins byrjun til nýrrar stefnu, einungis hyrningarsteinninn undir því, sem við væntum að þingið muni gera í framtíðinni. Í því trausti mun jeg greiða frumvarpinu atkvæði mitt.