21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)

109. mál, forðagæsla

Forseti:

Brtill. á þgskj. 500 hefur eigi verið útbýtt fyr en nú í fundarbyrjun, svo að fá verður leyfi deildarinnar til þess, að greitt sje atkvæði um hana nú. Bið jeg þá háttv. þingdeildarmenn, sem veita vilja þetta leyfi, að gera svo vel að standa upp.