22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Jósef Björnsson, framsögumaður meiri hlutans:
Eins og nefndarálitið í þessu máli ber með sjer, gat nefnd sú, sem kosin var til þess að fjalla um þetta frumv., ekki orðið samferða.
Meiri hlutinn getur ekki sjeð, að neitt verulegt mæli á móti því, að frv, þetta nái, fram að ganga, og hinsvegar finst honum að leggja verði áherzlu á, að frv. er komið fram fyrir eindregnar óskir manna á því svæði, sem ákvæði þess eiga að ná til, og að takmörkun sú, sem frv. fer fram á að gera megi á hringnótaveiði, er mjög litil, þar eð hún getur einungis náð til innri hluta Eyjafjarðar, og þótt sú breyting verði gerð á frumvarpinu, sem meiri hlutinn leggur til, sem sje, að það verði einnig látið ná til Skagafjarðar, samkvæmt óskum fjölda manna í því hjeraði, þá bætist ekki annað við en nokkur hluti af innanverðum Skagafirði. Að þetta geti valdið verulegu atvinnutjóni fyrir þá menn, sem nú stunda síldarveiði með hringnót eða herpinót, getur meiri hluti nefndarinnar ekki skilið, en meiri hluti nefndarinnar verður hinsvegar að vera þeirrar skoðunar, að frumv. tryggi bjargræðisvegi þeirra manna, sem stunda síldarveiði með öðrum veiðarfærum en hringnót, eða herpinót, sem nefndin leggur til að þetta veiðarfæri verði kallað í stað hringnótar. Vjer lítum og svo á, að þetta kunni að verða bátfiski til hagnaðar með því að ljettara verði að fá bátasíld. Þessvegna leyfir meiri hluti nefndarinnar sjer að ráða háttv. deild til þess að samþykkja frv. með lítilli breytingu, sem sje þeirri, að sýslunefnd Skagafjarðar sje einnig heimilt að gera samþyktir um síldarveiði með herpinót á Skagafirði, innan beinnar línu milli Kögurnafar á Þórðarhöfða og Reykjadisks. Þótt nú svo sje, sem háttv. minni hluti heldur fram, að fiskiveiðasamþyktir, einkum þær, sem gerðar hafa verið við sunnanverðan Faxaflóa, hafi reynzt illa, þá verður meiri hlutinn að líta svo á, að öðruvísi horfi við um þetta mál, en um ýmsar fiskiveiðasamþyktir, sem gerðar hafa verið, sjerstaklega hjer við sunnanverðan Faxaflóa, og geti því enginn samanburður komið til greina þar á milli. Jeg skal svo ekki mæla frekar fram með þessu frv. að sinni, en vil einungis taka það fram, að meiri hlutinn hefur í nefndaráliti sínu bent á þau þrjú atriði, sem að hans áliti mæla mest með því, að frv. þetta verði samþykt, og að hann getur ekki sjeð neitt athugavert við frv., og leyfir hann sjer því að ráða háttv. deild til þess, að samþykkja það með þeim breytingum, sem hann hefur lagt til að á því verði gerðar.