28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)
91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs
Júlíus Havsteen:
Jeg er á móti einokun og finst, að reynsla íslenzku þjóðarinnar sje svo af einokuninni, að það sje harla óeðlilegt, að nokkur skuli halda henni fram. Annars er jeg ósamþykkur því, að umræðurnar snúist um einokun eða vatnskerlingar, eins og hjá hv. frsm. (G. B.), og blanda mjer ekki í þær.
Jeg verð að mótmæla því, að jeg haf misskilið 2. gr. frv. Það stendur þar beinlínis, að sveitarsjóðir og landssjóður eigi að greiða andvirði alls korns, sem ekki er notað. En af hverju er það ekki notað ? Það getur verið af því, að kornið sje svo vont, að enginn geti notað það, og þetta skemda korn eigi svo sveitarsjóðir og landssjóður að borga. Og það er rangur grundvöllur, sem frv. er bygt á. Jeg er meðmæltur því, að menn tryggi sig sjálfir, og vil, að það sje stutt að því sem mest má verða, að hver sjái um sig sjálfur. En þetta frv. gerir það ekki, það minnir meira á sveitarlimi.
En háttv. framsm. (G. B.) er dauðhræddur, og heldur, að heimurinn muni forgauga, ef að hafís kæmi fyrir Norðurlandi. En jeg get fullvissað hann um,að það hefur oft borið við, án þess að dómsdagur hafi runnið upp þar fyrir.