02.09.1913
Efri deild: 44. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)

40. mál, hagur Landsbankans

Forseti; Úr því að ástæðan fyrir að taka málið út af dagskrá er horfin, þá sje jeg enga þörf á að gera það. En sje háttv. þm. Strand. (G. G.) mjög ant um, að málinu sje frestað, skal jeg þó gera honum það til geðs að skjóta því undir úrskurð deildarinnar.