04.09.1913
Efri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (2138)

104. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans að gefa út (serie) bankavaxtabréfa

Eiríkur Briem, framsögumaður:

Við 2. umr. þessa máls var af ógáti ekki gerð brtill. við 20. gr. frv., í sömu átt og nokkrar aðrar brtill., að í staðinn fyrir „bankans“ í 3. línu kæmi, „veðdeildarinnar“, og leggjum vjer til, að þessu sje breytt. Að öðru leyti hef jeg ekki neitt að athuga, en óska að frv. þetta fái sama byr og við 2. umr.