04.09.1913
Efri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Björn Þorláksson:

Jeg stend ekki upp til þess að hafa umræðu um þetta frv., þó það sje þess vert, heldur til að stinga upp á, að kosin sje 5 manna nefnd í þetta mjög svo mikilsverða mál. Og vil jeg geta þess, að ef mál þetta á fram að ganga á þessu þingi, þarf að flýta því, og verður því það hlutverk nefndarinnar.