17.07.1913
Neðri deild: 13. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (215)

57. mál, girðingar

Bjarni Jónsson:

Eg stend upp til þess að andmæla refsiræðu hv. þm. (Sig. Sig.) yfir skrifstofunni. Eg hefi aldrei rekið mig á það, að skifstofan ynni illa, og er nær að halda, að allar þær hugsunarvillur og prentvillur, sem í frv. eru, sé hv. flutnm. um að kenna.