10.09.1913
Efri deild: 51. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)

97. mál, fátækralög

Steingrímur Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að benda á, að það er talsvert athugavert að fara nú að breyta þessum merkilegu fátækralögum frá 1905. Þess vegna vil jeg leggja til, að málinu sje vísað til nefndar að lokinni umr. Nefndin getur athugað málið í dag, og ef henni við þá athugun finst það þess vert, að það gangi fram á þessu þingi, þá er tími til þess.