10.09.1913
Efri deild: 51. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (2360)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Björn Þorláksson:

Jeg vildi skýra frá því, að nefndarálitið var sent í prentsmiðjuna, en er ekki komið enn, og kann jeg því illa, að þetta mál var sett á dagskrá, þótt nefndarálitið væri ekki komið, og skoða það sem móðgun við mig, formann nefndarinnar.