11.09.1913
Efri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Júlíus Havsteen:

Jeg þakka fyrir það traust, er háttv. deild hefur sýnt mjer með þessari kosningu, og jeg skal taka það fram, að jeg mun gera hvað mjer er unt að gera mig traustsins verðugan. Og jafnframt því skal jeg geta þess, að jeg mun reyna að vinna að því, er jeg veit að háttvirtum þingmönnum er áhugamál, nefnilega að þingtíðindin verði sem fyrst prentuð.