12.09.1913
Efri deild: 53. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (2437)

65. mál, eignarnámsheimild fyrir bæjarstjórn Ísafjarðar

Sigurður Stefánsson, framsm.:

Háttv. neðri deild hefur breytt þessu frv. á þá leið, að hafnarbryggjur á Ísafirði skuli teknar undan eignarnámsheimildinni. Þar sem það var ekki meiningin að gera neinum manni tjón með eignarnámsheimildinni, hefur nefndin ekkert við þetta að athuga og leggur til, að frumvarpið verði samþykt. „