23.07.1913
Neðri deild: 17. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (278)

73. mál, skoðun á síld

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Með því að þetta mál er sérstaklegs eðlis, og ekki verður kosið í sjávarútvegsnefnd með tilliti til allra mála, virðist mér rétt að skipuð sé sérstök nefnd, og vil leyfa mér að styðja þá till. háttv. flutn.manns.