01.08.1913
Neðri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í C-deild Alþingistíðinda. (455)

82. mál, sala hjáleigunnar Mosfellsbringna í Mosfellssveit

Lárus H. Bjarnason:

Mér skilst sem hér Sé blandað taman tvennu ólíku. Mér finst, að hér sé ekki um annað að ræða en það, hvort sett skuli nefnd í málið eða ekki. Það er ekki svo sem jörðin verði seld, þótt sett sé nefnd í málið. Nefndin er ekki sett til annara en að meta ástæður, sem mæla með og móti. Eg get ekki annað en litið svo á, sem rétt sé að setja nefnd í málið, þar sem skoðanirnar eru skiftar. Eg styð þess vegna uppástunguna um nefnd.