01.08.1913
Neðri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í C-deild Alþingistíðinda. (469)
88. mál, lögskipaðir endurskoðendur
Framsögum. (Bjarni Jónsson):
Eg hefi borið fram þetta frv. af því að eg tel ótryggilegt fyrir almenning, að hlutafélög og sjóðir velji hina og þessa menn til að endurskoða reikninga sína, án þess að nokkuð sé litið til þess, hvort slíkir menn séu færir um að leysa verkið af höndum. Eg vil að þessir menn séu tilnefndir af stjórninni eða dómkvaddir. Eg býst við, að menn séu alment á sama máli sem eg um þetta. Vona eg að menn taki frumv. hlýlega. Nú með því að eg hefi haft nauman tíma til að semja frumvarpið og varð að hraða mér með það, áður varptíminn væri á enda, þá er ekki víst, að það sé svo úr garði gert sem bezt væri. Því leyfi eg mér að leggja til, að 5 manna nefnd sé valin í málið.