04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í C-deild Alþingistíðinda. (496)

7. mál, fasteignaskattur

Johannes Johannesson:

Eg þykist vita, að háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. Ól.) hafi átt við mig, þegar hann talaði um formann Sambandsflokksins eða stjórnarflokksins, held eg að hann hafi sagt. (Jón Ólafsson: Það er það sama). Eg verð því að lýsa því yfir, að eg er ekki formaður flokksins, heldur að eins fundarstjóri á þessu þingi.

Að öðru leyti verð eg að staðfesta orð hæstv. ráðherra, að það hefir aldrei komið til orða að gera þetta mál að flokksmáli.